Fréttir
30.01.2015
Lokað verður vegna framkvæmda á Vínbúðinni á Húsavík dagana 2. til og með 4. febrúar. Opnað verður svo aftur fimmtudaginn 5.febrúar, en miklar endurbætur eru væntanlegar á Vínbúðinni.
30.01.2015
Vínbúðin fékk hæstu einkunn allra fyrirtækja í niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar, annað árið í röð, en niðurstöður ársins voru kynntar í morgun. Vínbúðin fékk hæstu einkunn viðskiptavina 74,8.
23.01.2015
Þorrabjórinn er kominn í sölu í Vínbúðum, en sölutímabilið er frá bóndadegi, 23.janúar til 21.febrúar.
Hér er hægt að sjá þær tegundir sem eru í boði, en hægt er að sjá í hvaða Vínbúð varan er með því að smella á viðkomandi vöru.
20.01.2015
Sölutímabil þorrabjórs hefst föstudaginn 23.janúar, en tímabilið stendur til 21.febrúar. Í ár verða 8 tegundir þorrabjórs til sölu; Þorrakaldi, Þorragull, Þorraþræll, Einiberja Bock, Gæðingur, Steðji Hvalur II, Galar nr. 29 og Surtur nr. 30. ...
14.01.2015
Glæsileg Vínbúð í Vestmannaeyjum opnaði í nýju húsnæði í dag, 14. janúar, og er Vínbúðin er nú staðsett að Vesturvegi 10. Vöruval er það sama og áður en öll aðstaða fyrir viðskiptavini og starfsfólk hefur batnað til muna.
06.01.2015
Alls voru seldir 19.216 þús. lítrar af áfengi á árinu 2014 sem er 3% aukning frá fyrra ári en þá seldust 18.653 þús. lítrar.
Lítilsháttar aukning var í sölu á rauðvíni og ókrydduðu brennivíni og vodka en aftur á móti er 0,5% samdráttur í sölu á hvítvíni á árinu. Dregið hefur úr vexti á sölu ávaxtavína en á milli áranna 2012 og 2013 jókst salan í þessum flokki um 71% úr 181 þús. lítrum í 310 þús. lítra...
02.01.2015
Vínbúðirnar óska landsmönnum öllum farsældar á nýju ári!
Talning verður í Vínbúðunum mánudaginn 5. janúar. Lokað er á meðan á talningu stendur en einhverjar Vínbúðir opna að talningu lokinni.
Hefðbundin opnun er föstudag og laugardag, annan og þriðja janúar.