Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Okkar er ánægjan!

30.01.2015

Vínbúðin fékk hæstu einkunn allra fyrirtækja í niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar, annað árið í röð, en niðurstöður ársins voru kynntar í morgun. Vínbúðin fékk hæstu einkunn viðskiptavina 74,8.

Íslenska ánægjuvogin er könnun sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup standa sameiginlega að. Markmið Ánægjuvogarinnar er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina.
Við erum þakklát viðskiptavinum fyrir þessa viðurkenningu og stolt af starfsfólki Vínbúðanna sem sýnir í verki framúrskarandi þjónustu og samfélagslega ábyrgð á hverjum degi.