Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Vestmannaeyjum í nýtt húsnæði

14.01.2015

Glæsileg Vínbúð í Vestmannaeyjum opnaði í nýju húsnæði í dag, 14. janúar, og er Vínbúðin er nú staðsett að Vesturvegi 10.  Vöruval er það sama og áður en öll aðstaða fyrir viðskiptavini og starfsfólk hefur batnað til muna.  

Við stofnun ÁVR, árið 1922, voru áfengisútsölur stofnaðar í sjö kaupstöðum þar á meðal í Vestmannaeyjum.  Útsölunni var svo lokað árið 1953 vegna héraðsbanns en opnaði svo aftur árið 1966.  

Opnunartími Vínbúðarinnar er sá sami og áður og bjóðum við viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega Vínbúð.