Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný búð á Blönduósi

26.02.2015

Vínbúðin á Blönduósi opnar í dag, fimmtudag, í nýju og glæsilegu húsnæði að Húnabraut 5 (við hlið Arionbanka). Á sama tíma hefur gömlu búðinni á Aðalgötunni verið lokað, en Vínbúðin hefur verið starfrækt þar frá árinu 1994, þegar Vínbúð fyrst opnuð á Blönduósi.

Opnunartíminn er sá sami og áður, en við óskum viðskiptavinum innilega til hamingju og bjóðum alla velkomna í nýja Vínbúð.