Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Opnað á Hólmavík eftir breytingar

07.04.2015

Opnað var í Vínbúðinni Hólmavík þriðjudaginn 31. mars. Um merkt tímamót er að ræða hjá Vínbúðunum en nýja búðin er sjálfsafgreiðslubúð en ekki afgreitt yfir borðið eins og verið hefur fram að þessu. Með opnuninni eru því allar Vínbúðirnar sjálfsafgreiðslubúðir.

Nýja Vínbúðin er staðsett í sama húsnæði og áður en hefur aðeins færst um set innan húsnæðisins og er nú með sérinngangi.  Nýja Vínbúðin er samtals 36 fermetrar en var áður 22 fermetrar. Vínbúðin á Hólmavík opnaði fyrst í júní 2004.