Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Húsavík endurbætt

10.02.2015

Vínbúðin Húsavík opnaði aftur 5. febrúar sl. eftir gagngerar breytingar. Töluverð andlitslyfting hefur verið gerð á búðinni og hafa iðnaðarmenn unnið hörðum höndum undanfarið en Vínbúðin var lokuð frá 2. til 4. febrúar vegna framkvæmdanna.  Um óbreyttan fermetrafjölda er að ræða en Vínbúðin er nú öll bjartari með tilkomu nýrrar lýsingar og þá hefur Vínbúðin verið máluð í ljósum lit.   Settar voru upp nýjar innréttingar og nýtt gólfefni.  Þá var allt rafmagn endurnýjað sem og kerfisloft með nýrri lýsingu.  Nýjar hillur, innréttingar og afgreiðsluborð prýða nú Vínbúðina. Vínbúðin er á sama stað og áður, að Garðarsbraut 21.

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í endurbætta Vínbúð!