Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Viðbygging á Akureyri

25.10.2013

Viðbygging á AkureyriUndirritaður hefur verið verksamningur milli ÁTVR og Byggingarfélagsins Hyrnu ehf, sem mun reisa viðbyggingu við Vínbúðina á Akureyri. Um er að ræða verksamning sem byggir á tilboði Hyrnu, frá desember 2010, í þetta verk, en þar með lýkur endurbótum á Vínbúðinni. 

Viðbyggingin mun að mestu vera nýr lager fyrir Vínbúðina, en um er að ræða um 125 fermetra viðbót sem snýr í átt að Laxagötu. Þannig verður hægt að auka þjónustu við viðskiptavini og jafnframt bæta vinnuaðstöðu starfsfólks. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næstu dögum, en ekki er reiknað með að viðskiptavinir muni finna fyrir miklu ónæði á meðan þeim stendur.