Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala í Vínbúðunum um jól og fyrir áramót

27.12.2012

30. desember er að jafnaði einn söluhæsti dagur ársins.  Hann ber nú eins og Þorláksmessu upp á sunnudag  því má búast má við miklum fjölda viðskiptavina á gamlársdag.  Í fyrra seldust 503 þúsund lítrar af áfengi fyrir um 670 m. kr. dagana 27. – 31. des.  Viðskiptavinir voru um 94 þúsund og þar af komu rúmlega 61% þeirra 30.  – 31. des. Við hvetjum viðskiptavini til að vera snemma á ferðinni ef þeir vilja forðast biðraðir og kynna sér vel opnunartímann.

Sala í Vínbúðunum það sem af er desember þ.e. frá 1. – 24. desember er 3,6% minni en á sama tíma í fyrra.   Sala áfengis fyrir jól  þ.e.  17. – 24. desember var  679 þúsund lítrar sem er 10,3% meiri magn en sömu daga í fyrra.  Þessa daga komu tæplega 132 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar eða um 5% fleiri en árið áður.  Í ár bar 23. des. upp á sunnudag og því lokað í Vínbúðunum.  Viðskiptavinir komu því í meira mæli í Vínbúðirnar 21. og 22. des en mikið álag var á aðfangadag.  Þá komu 137% fleiri viðskiptavinir en á aðfangadag í fyrra eða um 14 þúsund viðskiptavinir frá klukkan 9 – 13, sem lætur nærri að vera í efri mörkum afkastagetu Vínbúðanna. 
 
 
Vínbúðirnar óska landsmönnum  farsældar á komandi ári!