Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Breytingar á verði áfengis og tóbaks um mánaðarmótin nóvember/desember

30.11.2004

ÁTVR hefur metið breytingar á verði áfengis í Vínbúðum og verði tóbaks í heildsölu til samræmis við breytingar áfengis- og tóbaksgjöldum sem samþykktar voru á Alþingi í gær. Auk þess hafa verið metnar inn breytingar á aðfangaverði áfengis frá innlendum birgjum sem taka gildi á morgun, 1.desember.

Verð áfengis hækkar við þessar breytingar að meðaltali um 1,53%. Af því er hækkun vegna breytinga á áfengisgjaldi 1,51%.

Verð á tóbaki hækkar um 5,1% vegna breytinga á tóbaksgjaldi.