Vínbúðirnar hafa undanfarin ár rekið vínskóla hugsaðan til þess að auka vöruþekkingu starfsmanna með það að leiðarljósi að geta frætt og þjónað viðskiptavinum enn betur.

Einn virtasti vínskóli heims, WSET í London, hefur viðurkennt Vínskóla Vínbúðanna hæfan til kennslu á efni þeirra, svokölluðu Advanced námskeiði.  Vínbúðirnar hafa nú innan sinna vébanda vínsérfræðinga sem búa yfir þekkingu til að annast alþjóðlega viðurkennd námskeið í þeim tilgangi að bjóða upp á hágæða menntun og starfsþjálfun í öllu er viðkemur borðvínum og eimuðum drykkjum.  Nú þegar hafa átta starfsmenn lokið þessari alþjóðlegu gráðu frá WSET og eru því  útnefndir Vínráðgjafar Vínbúðanna.

Vertu velkominn í Vínbúðirnar og nýttu þér góð ráð hjá Vínráðgjöfum eða öðru starfsfólki.

Kokteilar

Tequila Sunrise

4 cl. tequila 12 cl. appelsínusafi 4 cl. Grenadine

Meira

Vínblaðið

Júní-hefti Vínblaðsins er komið út.
Grilluppskriftir, kokteilar, brúðkaupshefðir, fréttir og ölvunarakstur...

Meira

Fróðleikur

Með hækkandi sól sækjum við landar í léttari vín, hin þungu og bragðmiklu rauðvín fá yfirleitt hvíld þar til haustar á ný. Sumarið er sá tími sem hvítvínin njóta sín hvað best...

Meira


 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit