![Hvaða lögbrot finnst þér í lagi að fremja? Hvaða lögbrot finnst þér í lagi að fremja?](Portaldata/1/Resources/samfelagsleg/herferdir/saman.jpg)
"Hvaða lögbrot finnst þér í lagi að fremja?" er herferð sem ÁTVR vann í samstarfi við SAMAN hópinn. Tilgangur herferðarinnar er að letja foreldra í að kaupa áfengi fyrir unglingana sína og fræða þá um þær skaðlegu afleiðingar sem það getur haft í för með sér. Um er að ræða plaköt og kort sem foreldrar og aðrir áhugasamir geta tekið með sér heim til að kynna sér efnið betur.