Herferðir

Er þetta rétt þróun?

Vínbúðirnar standa nú fyrir auglýsingaherferð sem byggir á því að hvetja foreldra til að kaupa ekki áfengi fyrir unglinginn. Herferðin er á léttu nótunum, þótt undirtónninn sé alvarlegur. Aðalhlutverkin eru í höndum Hilmis Snæs Guðnasonar og Atla Fjalarssonar.
Meira

Umhverfisauglýsingar - Í þínum höndum

Náttúran er villt og lýtur eigin lögmálum. Það er því á okkar ábyrgð hvernig við umgöngumst hana. Vínbúðirnar fóru af stað með umhverfisauglýsingar árið 2006 þar sem fólk er hvatt til að hafa jákvæð áhrif á umhverfi okkar. Auglýsingarnar hafa aðallega verið birtar í fagtímaritum og blöðum sem tengjast ferðamennsku.
Meira

Ef þú bara...

Vínbúðirnar hafa í samstarfi við Umferðarstofu og Vegagerðina birt auglýsingarnar "Ef þú bara..". Auglýsingarnar eru upphaflega frá árinu 2003, en þeim er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ýmsa áhættuþætti í umferðinni, en Vínbúðirnar tóku þátt í þeim hluta sem snýr að ölvunarakstri...
Meira

Bíddu - hafðu skilríkin meðferðis.

Sumarið 2009 standa Vínbúðirnar fyrir auglýsingaherferð undir yfirskriftinni "Bíddu - hafðu skilríkin meðferðis". Markmiðið með auglýsingunum er að vekja á jákvæðan hátt athygli á áfengiskaupaaldrinum og hvetja ungt fólk til að sýna skilríki að eigin frumkvæði.

Auglýsingarnar verða sýndar í sjónvarpi, útvarpi, netmiðlum á strætóskýlum og í bíó.
Meira

Sá sem flöskustútur lendir á...

Umferðarstofa í samvinnu við Vínbúðirnar unnu saman að auglýsingaherferð sem heitir „Sá sem flöskustútur lendir á“ en með þessu átaki er ökumönnum gerð grein þeim afleiðingum sem ákvörðunin um að aka eftir neyslu áfengis getur haft. Herferðin var fyrst og fremst hönnuð fyrir netmiðla og útvarp.
Meira

Hafðu skilríkin meðferðis

Á starfsfólki Vínbúðanna hvílir sú skylda að ganga úr skugga um að viðskiptavinir hafi aldur til að kaupa áfengi. Í júlí 2008 var hrint af stað átaki í þeim tilgangi að auka skilning viðskiptavina á mikilvægi þess að hafa skilríki sín meðferðis í Vínbúðina og hvetja þá til að sýna þau að fyrra bragði. Herferðin er byggð á svipuðum auglýsingum og Vínbúðirnar sýndu árið 2007, en þó með örlítið breyttu sniði.
Meira

Láttu ekki vín breyta þér í svín, drekktu eins og manneskja.

Vínbúðirnar hafa nú sett í loftið nýja auglýsingaherferð þar sem lykilsetningin er: Láttu ekki vín breyta þér í svín, drekktu eins og manneskja. Markmiðið er að minna fólk á að umgangast áfengi af ábyrgðartilfinningu og sóma. Bent er á að þegar fólk drekkur of mikið gerir það stundum hluti sem það annars gerir ekki. Til þess að koma þessari hugmynd til skila er fólk sem hegðar sér ósæmilega við aðstæður sem almenningur þekkir og mislíkar sýnt með svínsandlit.
Meira

Að kaupa vín er ekkert grín

Í júlí 2007 var hrint af stað átaki í þeim tilgangi að auka skilning viðskiptavina á mikilvægi þess að hafa skilríki sín meðferðis í Vínbúðina og hvetja þá til að sýna þau að fyrra bragði.
Meira

Hvaða lögbrot finnst þér í lagi að fremja?

"Hvaða lögbrot finnst þér í lagi að fremja?" er herferð sem ÁTVR vann í samstarfi við SAMAN hópinn
Meira

Bara einn er einum of mikið

Í þessari auglýsingaherferð er verið að vekja ökumenn til umhugsunar um alvarleika þess að aka undir áhrifum áfengis
Meira

Áfengi fylgir ábyrgð

Í maí 2005 stóð ÁTVR fyrir herferðinni "Áfengi fylgir ábyrgð" en þar er vakin athygli á því að ábyrgir gestgjafar eigi að gera þá kröfu til gesta sinna að þeir aki ekki heim undir áhrifum áfengis.
Meira

Aktu aldrei undir áhrifum

Fyrir verslunarmannahelgi 2004 hófust sýningar á auglýsingunni Hvað þarf til þess að stoppa þig? sem var gerð í samstarfi milli ÁTVR og Umferðarstofu.
Meira

(0)
shopping cart
Samtals 0 kr.
Litla karfan
Engar vörur í körfu
n/a
n/a stk * n/a = n/a
Sett í körfuna


 

Breyta um leturstærð



Leit

Vöruleit