Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Opnunartímar í Vínbúðunum yfir hátíðirnar

19.12.2014

Opið er í Vínbúðunum á höfuðborgarsvæðinu frá 10-22 á þorláksmessu og 10-13 á aðfangadag. Lokað er 25. og 26.desember en opið 11-18 laugardaginn 27.desember.
Þriðjudaginn 30.desember er opið 11-20* og 10-14 á gamlársdag. Lokað er í öllum Vínbúðum fimmtudaginn 1. janúar, en opið samkvæmt venju á föstudeginum og laugardeginum. Nánari upplýsingar um opnunartíma á höfuðborgarsvæðinu auk Vínbúða á landsbyggðinni má sjá HÉR.
Talning verður í Vínbúðunum mánudaginn 5. janúar. Lokað er á meðan á talningu stendur en sumar Vínbúðir opna að talningu lokinni (sjá nánar).
Við hvetjum viðskiptavini til að vera snemma á ferðinni ef þeir vilja forðast biðraðir og kynna sér vel opnunartímann. 
 
Vínbúðirnar óska landsmönnum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári!
 
 
*30.desember er opið 10-20 á Dalvegi, Skeifu og Skútuvogi