Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Rósavín og matur

12.05.2016

Sumarið er í hugum margra tími rósavínsins. Það er létt og ferskt og langbest borið fram kælt, sem er tilvalið á heitum sumardegi. Það hentar vel með grillmat og léttum sumar réttum, möguleikarnir á ljúffengri pörun með mat eru nánast endalausir.
Í maí og júní verða rósavín í sviðsljósinu á vinbudin.is þar sem hæft er að nálgast upplýsingar og skemmtilega fræðslu um rósavínin. Kokkarnir á Sushi Samba, með Aron Má Jóhannsson í broddi fylkingar, göldruðu fram 6 ljúffenga rétti sem smellpassa með rósavíninu og deildu uppskriftunum með okkur. Njótið vel!