Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Verslunarmannahelgin

29.07.2016

Vikan fyrir verslunarmannahelgi er jafnan ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra komu um 127 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar þessa viku og alls seldust um 719 þúsund lítrar af áfengi. Til samanburðar komu rúmlega 109 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar í síðustu viku, þ.e. vikuna 18. - 23. júlí, og þá seldust um 504 þúsund lítrar af áfengi.


Það sem af er vikunni þ.e. mánudag – fimmtudags hafa verið seldir 398 þúsund lítrar af áfengi og er það 14% meira magn er sömu vikudaga í fyrra.
Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðina föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dagur ársins. Í fyrra komu 41 þúsund viðskiptavinir þann dag. Flestir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18, eða allt að 6.500 viðskiptavinir á klukkustund. Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum. Fyrir þá sem vilja forðast langar biðraðir er því gott að vera tímalega.


Flest bendir til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi í ár verði svipaður og í fyrra. Allt kapp er lagt á það að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig.


Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna).