Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Gleðileg jól

23.12.2015

Opið er í Vínbúðunum á höfuðborgarsvæðinu frá 10-22 á Þorláksmessu og 10-13 á aðfangadag. Lokað er 25. og 26. desember en opið mánudaginn 28. des og þriðjudaginn 29. des. samkvæmt venju.

Miðvikudaginn 30. desember er opið 10-20 og 10-14 á gamlársdag. Lokað er í öllum Vínbúðum föstudaginn 1. janúar, en opið samkvæmt venju á laugardeginum. Nánari upplýsingar um opnunartíma á höfuðborgarsvæðinu auk Vínbúða á landsbyggðinni


Talning verður í Vínbúðunum mánudaginn 4. janúar. Lokað er á meðan á talningu stendur en sumar Vínbúðir opna að talningu lokinni. Við hvetjum viðskiptavini til að vera snemma á ferðinni ef þeir vilja forðast biðraðir og kynna sér vel opnunartímann. 
 
Vínbúðirnar óska landsmönnum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári!