Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný stjórn og reglugerðarbreyting

19.03.2009

Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá Fjármálaráðuneytinu:
Fjármálaráðherra hefur gert tvenns konar breytingar á reglugerð um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og tekur hún gildi nú þegar. Annars vegar er ákvæðum reglugerðarinnar um álagningu stofnunarinnar á áfengi og tóbaki breytt til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 63/1969, um verslun með áfengi og tóbak, á síðastliðnu haustþingi. Hins vegar eru gerðar breytingar á ákvæðum um stjórn Áfengis- og tóbaksverslunarinnar þannig að stjórnarmönnum er fjölgað úr þremur í fimm og stjórnin er skipuð til ársloka 2009.

Fjármálaráðherra hefur skipað eftirtalda einstaklinga í stjórn Áfengis- og tóbaksverslunarinnar.

Aðalmenn:
• Aðalheiður Héðinsdóttir, formaður
• Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaformaður
• Eyjólfur Eysteinsson
• Sigurður M. Magnússon
• Maríanna Jónasdóttir

Varamenn:
• Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
• Helga A. Erlingsdóttir
• Bryndís Friðgeirsdóttir
• Dögg Pálsdóttir
• Þórður Reynisson

Enn fremur hefur fjármálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp sem hefur það hlutverk að gera heildstæða úttekt á áfengislöggjöfinni. Meðal verkefna starfshópsins er að leggja mat á lagaumhverfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, áfengisauglýsingar og markaðssetningu áfengis. Starfshópurinn mun verða undir forystu fjármálaráðuneytisins en í starfshópnum eiga einnig sæti fulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins. Miðað er við að starfshópurinn skili tillögum sínum til fjármálaráðherra fyrir lok september næstkomandi. 


Reykjavík 19. mars 2009