Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Listaverk í vínbúðum

06.04.2006

Listaverk í vínbúðumÁTVR gefur listamönnum sem þess óska tækifæri til að sýna verk sín í vínbúðum fyrirtækisins.

Tímabil fyrir sýningu hvers listamanns eru  4 mánuðir, en val á listamanni fer fram eftir mati hverju sinni, þó verður haft til hliðsjónar að viðkomandi uppfylli skilyrði um lágmarksmenntun s.s. háskólapróf frá viðurkenndum listaháskóla eða hafi aðra sambærilega menntun.

ÁTVR veitir viðskiptavinum sem þess óska upplýsingar um verð á listaverkum og nafn og símanúmer þar sem hægt er að ná sambandi við listamann vegna nánari upplýsinga og/eða sölu listaverka.

Nánari upplýsingar veitir Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs í síma 560-7700 eða á netfangi einar@vinbud.is