Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Salan jókst fyrstu 9 mánuði ársins

03.10.2008

Sala í lítrum fyrstu 9 mánuði ársins jókst um 3,9% miðað við sama tímabil í fyrra.
Sala bjórs jókst um 3,7% á tímabilinu og rauðvíns um 3%.  Sala á hvítvíni  hefur
hins vegar aukist verulega eða um 14,1%.  Sala á ókrydduðu brennivíni og
vodka eykst umfram meðaltal og er 6,6%.

Salan jókst fyrstu 9 mánuði ársins

Velta áfengis á tímabilinu var 12,6 milljarðar króna en var 11,4 milljarðar í fyrra
og nemur aukningin 10,4% á milli ára.