Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Mikil umferð á vinbud.is yfir hátíðirnar

03.01.2008

Mikil umferð á vinbud.is yfir hátíðirnarMikil umferð var á vinbud.is yfir hátíðirnar, en greinilegt er að viðskiptavinir okkar hafa tekið endurbættri vefsíðu fagnandi.

 

Fjöldi innlita á síðuna hefur aukist gríðarlega, en heimsóknir hafa aukist um tæp 1.200% frá því nýja vefsíðan var tekin í notkun, nú í október, en meðalfjöldi heimsókna sl. mánuði hefur verið um 32.000.


Á Gamlársdag litu tæplega 6.000 manns við á síðunni, líklega til að kanna afgreiðslutíma vínbúða, nýta sér aðstoð vörulistans
við að finna rétta vínið í partýið eða með steikinni eða jafnvel nálgast uppskriftir að kokteilum.


Vínbúðirnar óska landsmönnum gleðilegs nýs árs!