Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin á Kirkjubæjarklaustri flytur

21.02.2013

Vínbúðin Kirkjubæjarklaustri  hefur nú opnað í nýju og glæsilegu húsnæði að Klausturvegi 15. Nýja Vínbúðin er sjálfsafgreiðsluverslun en áður var afreiðslan yfir borð. Á undanförnum árum hefur þeim Vínbúðum fækkað mjög þar sem afgreitt er yfir borð og eru nú eingöngu fimm Vínbúðir af 48 sem hafa það fyrirkomulag. 
Sigurlaug Jónsdóttir hefur verið ráðinn verslunarstjóri  á nýja staðnum og opnunartíminn verður sá sami og áður þ.e. yfir veturinn er opið mán.-fim 17-18 og frá kl. 14 – 18 á föstudögum.  Yfir sumartímann er opið lengur.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna á nýja staðinn.