Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Við breytum og bætum Vínbúðina Austurstræti

03.01.2013

Þessa dagana standa yfir breytingar á Vínbúðinni í Austurstræti sem áætlað er að standi yfir þar til í byrjun febrúar. Skipt verður meðal annars um gólfefni og nauðsynlegar endurbætur gerðar á innréttingum.
Vínbúðin verður lokuð á meðan á framkvæmdum stendur og er viðskiptavinum bent á nálægar Vínbúðir eins og Vínbúðina Borgartúni, Vínbúðina Eiðistorgi og Vínbúðina Kringlunni.
Við vonum að þessar breytingar auki ánægju viðskiptavina og þökkum þolinmæðina.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í nýrri og betri Vínbúð.