Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sérfræðinganámskeiðið hjá Vínskóla ÁTVR

03.11.2006

Sérfræðinganámskeiðið hjá Vínskóla ÁTVRÁTVR hefur um tveggja ára skeið rekið Vínskóla fyrir starfsfólk fyrirtækisins, þar sem kennd eru grunn- og framhaldsnámskeið í vínfræðum. Nú í nóvember byrjun hófst kennsla í  fyrsta sérfræðinganámskeiði á vegum Vínskólans. Sex manns úr ýmsum vínbúðum sækja námið, sem kennt er einu sinni í viku næstu 12 vikurnar.

Námskeiðið er sérstakt að því leyti að stuðst verður við námsefni frá Wine and Spirit Education Trust (WSET), en það er breskur skóli sem hlotið hefur viðurkenningu á heimsvísu fyrir faglega kennslu í vínfræðunum. ÁTVR er að kanna möguleikann á að láta þátttakendur taka próf frá skólanum og fá þannig alþjóðlega viðurkenningu.