Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýtt Vínblað komið út

08.09.2008

Nú er nýtt og spennandi Vínblað komið út.  Að þessu sinni er blaðið með haustlegu ívafi og áhersla lögð á ber og osta.  Páll vínráðgjafi er með fróðlega grein um hvernig megi para saman osta og vín svo vel fari, auk þess sem skemmtileg grein þar sem ráðleggingar vínþjóna um að velja rétta vínið með matnum vekur eflaust áhuga margra. Einnig er umfjöllun um hina víðsfrægu Októberfest, ráðleggingar um réttu glösin með víninu og grein um lífræna ræktun svo fátt eitt sé nefnt. Það er því ráð að skella sér í næstu Vínbúð og næla sér í glóðvolgt eintak af nýju Vínblaði!