Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Salan jókst fyrstu 8 mánuði ársins

04.09.2008

Salan jókst fyrstu 8 mánuði ársinsSala í lítrum fyrstu 8 mánuði ársins jókst um 4,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs jókst um 3,8% á tímabilinu, rauðvíns um 3,2%. Sala á hvítvíni heldur áfram að aukast og er nú 15,4% meiri en í fyrra. Sala í ókrydduðu brennivíni og vodka eykst einnig umfram meðaltal og er 7%.

 

Velta áfengis á tímabilinu var 11,2 milljarðar króna en var 10,2 milljarðar í fyrra og nemur aukningin 10,5% á milli ára.