Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fjórar tilnefningar til íslensku auglýsingaverðlaunanna

23.02.2008

BossForvarnar-auglýsing Vínbúða og Umferðastofu "Bara einn er einum of mikið" hlaut fjórar tilnefningar til Lúðursins, Íslensku auglýsingaverðlaunanna. Auglýsingaherferðinni er ætlað að vekja ökumenn til umhugsunar um alvarleika þess að aka undir áhrifum áfengis – jafnvel þótt aðeins hafi
verið dreypt á einu glasi. ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, veitir verðlaunin árlega í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Verðlaunin verða veitt á íslenska markaðsdeginum þann 29. febrúar.