Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýtt Vínblað komið út

10.12.2007

Nýtt Vínblað komið útNú er nýtt Vínblað komið út og er sem endra nær fullt af fróðleik um vín og mat. Í blaðinu er að finna upplýsingar um hvernig vín henta með hátíðarmatnum, ítarleg grein um kampavínið, nokkur góð ráð til að kaupa vín eins og sérfræðingur, árgangatafla og fleira og fleira. Einnig skrifar Sigmar B. Hauksson áhugaverða grein um vín og villibráð.

Blaðinu er dreift í allar vínbúðir á landinu og er gjaldfrjálst fyrir viðskiptavini.