Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fireball viskílíkjör tekinn úr sölu.

27.10.2014

Fireball viskílíkjör tekinn úr sölu.ÁTVR hefur ákveðið að taka viskílíkjörinn Fireball Cinnamon úr sölu í Vínbúðunum a.m.k. tímabundið á meðan verið er að kanna hvort varan innihaldi óleyfilegt magn af própýlenglýkóli.

ÁTVR barst um helgina tilkynning frá finnsku áfengiseinkasölunni, Alko, þar sem fram kemur að við hefðbundið eftirlit hafi mælst of hátt gildi af própýlenglýkóls í umræddri vörutegund. Í tilkynningunni segir jafnframt að varan sé ekki hættuleg neytendum.

Þeir viðskiptavinir sem hafi umrædda vörutegund undir höndum geta snúðið sér til næstu Vínbúðar og fengið vöruna endurgreidda.