Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýjar Vínbúðir

02.07.2004

44. Vínbúð ÁTVR var opnuð á Kirkjubæjarklaustri í vikunni. Hún er í Skaftárskála á horni þjóðvegar eitt og Klausturvegs. Búðin er opin milli 17 og 18 mánudaga til fimmtudaga, en 16-18 á föstudögum og er í flokka 100 tegunda vínbúða. Verslunarstjóri er Alexander G. Alexanderson.

Vínbúðin Höfn var flutt yfir í Esso-skálann á Vesturbraut 2 þann 22. júní sl.. Hún er í flokki 200 tegunda búða sem opin er milli 11-18 mánudaga til fimmtudaga, 11-19 föstudaga og 11-14 laugardaga. Verslunarstjóri hennar er Elín Þórdís Heiðarsdóttir.