Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Bjór og matur í október

06.10.2014

Bjór og matur í októberÍ október eru þemadagar í Vínbúðunum, en lögð er áhersla á að fræðast um bjór og mat og kynnast fjölbreytileikanum í bjórflórunni. 

Allur bjór er flokkaður í 6 bjórflokka, sem hver hefur sín einkenni og fróðlegt er að sjá og kynnast hvaða tegundir falla undir sama flokk. Með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat bjórinn hentar, þó það sé svo að sjálfsögðu smekksatriði hjá hverjum og einum. Bjórflokkana er hægt að skoða hér á vinbudin.is og einnig í Vínbúðunum.

Gefinn hefur verið út bæklingur með skemmtilegum uppskriftum frá veitingastaðnum Kol, en uppskriftirnar einkennast af einfaldleika með klassískum undirtóni og því um að gera að láta á hæfileikana reyna í eldhúsinu.