Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýr margnota burðarpoki

03.10.2014

Nýr margnota burðarpokiÍ Vínbúðunum eru til sölu taupokar úr umhverfisvænu efni og kjósa stöðugt fleiri viðskiptavinir þá í stað plastpokanna.  Um þessar mundir erum við að bæta við vöruúrvalið okkar og um er að ræða rauðan, margnota burðarpoka.   Pokinn er úr þunnu og afar léttu efni sem hrindir frá sér vatni.  Samfélagsábyrgð skiptir Vínbúðirnar miklu máli og höfum við stolt tekið frumkvæði í umhverfisábyrgð meðal annars með því að stuðla að því að draga úr notkun á plastpokum og öðrum einnota vörum.  Pokinn er væntanlegur í Vínbúðirnar næstu daga og mun kosta 180,- krónur.