Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Vopnafirði opnar aftur í dag

15.07.2014

Vínbúðin Vopnafirði opnar aftur í dagVínbúðin Vopnafirði opnar aftur í dag kl. 16, en búðin var lokuð í gær vegna bruna í matvöruverslun sem er við hliðina á Vínbúðinni. Mikið verk hefur verið unnið við að reykræsta og þrífa sót sem lá yfir öllu. Fjölmargir aðilar komu að þeirri vinnu auk starfsfólks Vínbúðarinnar svo sem lögregla, slökkvilið, starfsfólk HB Granda og fleiri og þökkum við öllum þessum aðilum fyrir flott starf. Engar skemmdir urðu á vörum, tækjum eða búnaði Vínbúðarinnar.