Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala á jólabjórnum hafin

15.11.2013

Sala á jólabjórnumSALA Á JÓLABJÓRNUM Hafin

Sala á jólabjórnum er hafin í Vínbúðunum, en alls eru 25 tegundir í boði þetta árið, bæði nýjar og gamlar. Fjórtán íslenskar tegundir í þessum hópi, en Danir koma þar fast á eftir. Einnig eru á listanum tegundir frá Belgíu, Bandaríkjunum og Bretlandi.

Í ár eru sjö nýir jólabjórar seldir, en þeir eru

  • Egils Malt jólabjór
  • Thule jólabjór frá Vífilfelli
  • Ýlir frá Gæðingi
  • Stúfur frá Borg Brugghúsi
  • Snowball Saison frá To Øl, Danmörku
  • Carl‘s Jul frá Carlsberg, Danmörku
  • Giljagaur, Borg

Um 600 þúsund lítrar seldust í fyrra og þar af tæplega helmingurinn síðustu tvær vikur nóvembermánaðar.

Hér má sjá lista yfir jólabjórana sem til eru í Vínbúðum núna