Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Stekkjarbakki opnar aftur

22.10.2013

Stekkjarbakki opnar afturNý og glæsileg Vínbúð opnar aftur í Stekkjarbakka á morgun, miðvikudaginn 23.október. Gagngerar breytingar hafa verið gerðar á búðinni, hún stækkuð töluvert og stór kælir kominn fyrir bjórinn. Búðin er nú öll bjartari og skemmtilegri auk þess sem aðstaða starfsmanna hefur verið bætt til muna.

Opnunartíminn er sá sami og áður, mánudaga til fimmtudaga 11-18, föstudaga 11-19 og laugardaga 11-18. Við bjóðum viðskiptavini velkomna í breytta og bætta Vínbúð í Stekkjarbakka.