Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis og tóbaks jan - ágúst

09.09.2013


Sala áfengis jókst um 0,1% fyrstu átta mánuði ársins í samanburði við sama tímabil í fyrra.  Aukning var í sölu rauðvíns um 2,6% og ávaxtavínum (síderum) um 90,3% miðað við árið áður. Samdráttur var hins vegar í sölu á hvítvíni um 1,3%, lagerbjór um 1,6% og ókrydduðu brennivíni og vodka um 5,4%.

Sala áfengis og tóbaks jan-ágúst


Athygli vekur að sala rauðvíns hefur verið að aukast á meðan sala á hvítvíni hefur verið að dragast saman.  Þessi þróun er öfug við þróun undanfarinna 10 ára en allt frá árinu 2003 hefur sölubreyting hvítvíns verið meiri en sölubreyting rauðvíns.
Sala áfengis í sumar (júní – ágúst) var 1,5% minni en sömu mánuði í fyrra.

Sala áfengis og tóbaks

Sala tóbaks
Fyrstu átta mánuði ársins var samdráttur í sölu vindlinga 10,5%, vindla 8,4% og sala neftóbaks hefur dregist saman um 7,1 % í samanburði við fyrra ár. Hins vegar er aukning í sölu reyktóbaks 6,8%.

Sala tóbaks