Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Breytingar á Akureyri

09.10.2012

Nýtt vínblað komið í vínbúðirÞessa dagana eru að hefjast breytingar á Vínbúðinni á Akureyri sem áætlað er að standi yfir þar til í seinnihluta nóvember. Skipt verður um gólfefni, inn-  og útgangur verður aðskilinn og nauðsynlegar endurbætur verða gerðar á innréttingum. 


Vínbúðin verður opin á meðan á framkvæmdum stendur en Vínbúðinni verður skipt til helminga og hún rekin í sitthvorum helmingi rýmisins í tæpar þrjár vikur í senn. Eitthvað rask gæti því orðið á þjónustu og vöruval verður tímabundið minna, en á vinbudin.is er hægt að panta vörur og fá sent án endurgjalds í Vínbúðina. Að framkvæmdum loknum verður vöruval svo aukið frá því sem nú er.


Við vonum að þessar breytingar auki ánægju viðskiptavina og þökkum þolinmæðina. Við bendum þeim sem eru á hraðferð á að snjallt er að forðast álagstímana, en mesti álagstíminn í Vínbúðinni er á föstudögum og laugardögum frá kl. 16-18.

Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í nýrri og betri Vínbúð.