Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sögulegir flutningar í Ólafsvík

09.08.2012

Sögulegir flutningar í ÓlafsvíkÍ dag opnar Vínbúðin í Ólafsvík í nýju og glæsilegu húsnæði að Ólafsbraut 55. Á sama tíma lokar gamla Vínbúðin sem opnuð var árið 1987 í samstarfi við barnafataverslun. Vínbúðin var á sínum tíma fyrsta Vínbúðin sem ÁTVR opnaði í samstarfi við annan rekstraraðila og markaði sú opnun tímamót í þjónustu við viðskiptavini.

 

Í dag eru breyttir tímar og Vínbúðirnar hafa smám saman verið að breytast í sérhæfðar verslanir með sjálfsafgreiðslu þar sem áherslan er eftir sem áður lögð á gott vöruúrval og framúrskarandi þjónustu.

 

Elsa Bergmundsdóttir verður áfram verslunarstjóri  á nýja staðnum og opnunartíminn verður einnig sá sami og áður. Opið er mánudaga til föstudaga frá 14:00 – 18:00. Við bjóðum viðskiptavini velkomna á nýja staðinn.