Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Umhverfisvænu pokarnir vinsælir

17.04.2012

Umhverfisvænu pokarnir vinsælir

Í Vínbúðunum geta viðskiptavinir valið að kaupa umhverfisvæna poka sem hægt er að nota aftur og aftur í stað einnota plastpoka. Umhverfisvænu pokarnir hafa notið mikilla vinsælda, enda auðveldlega hægt að nýta þá í fleiri innkaupaferðum. Pokarnir kosta 150 kr. og því margborgar sig að fjárfesta í einum slíkum.

Árlega kaupa viðskiptavinir Vínbúðanna um 2,2 milljón plastburðarpoka en nú geta þeir sem vilja vera umhverfisvænir nýtt sér þessa frábæru poka aftur og aftur.