Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin tilnefnd til íslensku auglýsingaverðlaunanna!

19.02.2009

Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, er opinn öllum sem stunda gerð eða dreifingu auglýsinga á Íslandi. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á vel gerðum auglýsingum og auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli.

 

Láttu ekki vín breyta þér í svín   Nýtt vörumerki Vínbúðanna  Skilríki, getur þú sannað það?

 

Vínbúðin er tilnefnd til verðlauna í fjórum liðum:

  • Vöru- og firmamerki: Nýtt vörumerki Vínbúðanna
  • Almannaheillaauglýsingar: Láttu ekki vín breyta þér í svín (sjónvarp)
  • Almannaheillaauglýsingar. Láttu ekki vín breyta þér í svín (dagblöð)
  • Vefauglýsingar: Skilríki - getur þú sannað það?

    Nánari upplýsingar um tilnefningarnar er að finna á vef Imark

Vínbúðirnar eru stoltar af tilnefningunum, en niðurstöður úr Lúðrinum munu liggja fyrir föstudaginn 27.febrúar nk.