Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala um verslunarmannahelgina

04.08.2009

Sala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgi var 3,9% minni í lítrum talið en í sömu viku fyrir ári.  Samtals seldust 752,9 þúsund lítrar af áfengi í ár en í sömu viku í fyrra seldust 783 þúsund lítrar.  Fjöldi viðskiptavina í vikunni var tæplega 125 þúsund, en í sömu viku í fyrra komu 127 þúsund viðskiptavinir.  Fækkun viðskiptavina er því 1,7%.

Föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi er einn stærsti dagur ársins í Vínbúðunum og síðastliðinn föstudag komu um 43 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar en sama daga fyrir ári komu 44 þúsund viðskiptavinir.
 Í Vínbúðinni í Vestmannaeyjum seldust 48,5 þúsund lítrar af áfengi vikuna fyrir verslunarmannahelgi í fyrra en 58,4 þúsund lítrar í ár.  Aukningin er um 20%.  Sambærilegar tölur fyrir Akureyri eru 63,8 þúsund lítrar seldir í fyrra, en 50,1 þúsund lítrar í ár eða minnkun um 22%.  Á Ísafirði seldust 14,2 þúsund lítrar í fyrra en 14,1 þúsund lítrar í ár sem er um 1% minna sala en fyrir ári.

Verslunmannahelgi