Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Smáverslanir ÁTVR á landsbyggðinni

11.12.2007

Í greinargerðinni með frumvarpinu er vísað í að einkaaðilar sjái um sölu á áfengum drykkjum og rekstur vínbúða fyrir ÁTVR. Þetta er alrangt. ÁTVR ber ábyrgð á og rekur allar vínbúðir á Íslandi óháð stærð og staðsetningu. Í hverri einustu verslun er starfsmaður ÁTVR sem rekur verslunina og ber ábyrgð á rekstrinum gagnvart ÁTVR. Verslunarstjóri ÁTVR er því ríkisstarfsmaður og háður lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og þeim fyrirmælum sem starfsmönnum ÁTVR eru sett. Þá er reksturinn sjálfur og rekstrarniðurstaðan að sjálfsögðu alls staðar alfarið á ábyrgð og áhættu ÁTVR.
Einkaaðilar reka hvergi vínbúðir á sína ábyrgð en þeir inna af hendi ýmsa þjónustu fyrir ÁTVR samkvæmt sérstökum samningi. Innihaldi samningsins er nánar lýst hér á eftir.
Á árum áður voru verslanir ÁTVR á landsbyggðinni fáar. Ekki þótti forsvaranlegt að leigja húsnæði og ráða starfsfólk vegna lítillar sölu og hás kostnaðar. Árið 1987 var reynd ný leið í Ólafsvík til þess að ná fram nægjanlegri hagkvæmni til þess að réttlæta opnun vínbúðar í smærra byggðarlagi og auka þar með þjónustuna við landsbyggðarfólk. Aðferðinni sem beitt var í Ólafsvík fólst í því að ÁTVR tók á leigu lítið rými við hliðina á barnafataverslun. Að sjálfsögðu var vínbúðin sjálf algerlega aðskilin frá barnafataversluninni með sérstöku lyklakerfi en inngangur og baksvæði voru sameiginleg. ÁTVR réð verslunarstjóra og gerði samning við eiganda barnafataverslunarinnar um ýmsa þjónustu eins og rakið er hér að neðan.  Með þessari samvinnu náðist mikil hagræðing og var samstarfið hagstætt, bæði fyrir ÁTVR og þjónustuaðila.
Í samningi við þjónustuaðila fólst m.a. að hann tryggði verslunarstjóra ÁTVR aðgang að salernum, kaffistofu og annarri starfsmannaaðstöðu. ÁTVR þurfti því ekki að leggja í kostnað við að koma slíkri aðstöðu upp. Þjónustuaðili sá um alla ræstingu og þrif. Í samningi var einnig áskilið að þjónustuaðili veitti verslunarstjóra ÁTVR aðstoð við vörumóttöku, uppröðun í hillur og önnur störf tengd vínbúðinni ef verslunarstjóri þurfti á slíkri aðstoð að halda. Fyrir sína þjónustu fékk samstarfsaðili fasta mánaðarlega greiðslu.  
Þetta fyrirkomulag gafst svo vel fyrir báða aðila að í dag rekur ÁTVR um 25 smáverslanir. Þær smæstu hafa einungis opið í eina klukkustund á dag. Grunnhugsun líkansins er ennþá sú sama og í upphafi. ÁTVR ber ábyrgð á og rekur allar vínbúðirnar. Frá því er enginn afsláttur gefinn og einkaaðilar koma þar hvergi nærri.
Tilgangurinn með rekstri smáverslana er að auka þjónustuna í dreifbýli með sem mestri fjárhagslegri hagkvæmni þó salan sé lítil. Í dag rekur ÁTVR alls 47 vínbúðir. Smáverslanir á landsbyggðinni eru því ríflega helmingur vínbúða ÁTVR en eru einungis með um 10% af sölunni.