Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Bæklingurinn Vín með mat kominn aftur

18.09.2003

Bæklingurinn Vín með mat kominn afturBæklingurinn Vín með mat er  kominn aftur í vínbúðir, endurútgefinn og betrumbættur. Þar er hægt að fá helstu upplýsingar um hvers konar vín henta með hvaða mat. Tilteknir eru hinir ýmsu réttir, fisk-, kjöt- eða grænmetisréttir og matur frá ýmsum löndum og bent á ýmsar gerðir vína sem fara best með réttunum. Bæklingurinn er í handhægu, litlu broti og fer vel í vasa.