Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Innköllun hjá Distell

01.06.2015

Tvær tegundir frá suður-afríska vínframleiðandanum Distell hafa verið innkallaðar tímabundið af markaði. Tegundirnar hafa báðar verið teknar tímabundið úr sölu hjá Vínbúðunum. Um er að fæða vínin Fleur du Cap Chardonnay með framleiðslunúmer LB130I14 og LB127H14 og Drostdy Hof Chardonnay með framleiðslunúmer LB125H14 og LB108L14.

Innköllunin er gerð að beiðni framleiðanda en við hefðbundið gæðaeftirlit fundust örsmáar gleragnir í flösku. Framleiðslugallinn var einangraður við lítinn hluta átöppunar.  Samkvæmt upplýsingum frá Distell eru agnirnar hættulausar og um að ræða 0,01% af þeim átöppunum sem við á. Engu að síður hefur verið tekin ákvörðun um að gæta fyllstu varúðar og innkalla allar flöskur með fyrrnefnd framleiðslunúmer. Framleiðslunúmerin má sjá á gráum borða á miða á bakhlið flöskunnar.
Neytendur sem hafa keypt flöskur af þessum vínum með fyrrnefnd framleiðslunúmer eru beðnir um að hafa samband við Globus, umboðsaðila Distell á Íslandi, Skútuvogi 1F, sími 522 2500.