Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Páskabjórinn væntanlegur

27.02.2014

Páskabjórinn væntanlegurNú fer páskabjórinn að detta í hús en hann kemur þann 5. mars í Vínbúðir.  Alls verða sjö tegundir af páskabjór í sölu þetta árið en þær eru; Víking páskabjór, Páskakaldi frá Bruggsmiðjunni, Víking Páska Bock, Páskagull frá Ölgerðinni, Gæðingur páskabjór, Jesús nr. 24 frá Borg og Þari páskabjór frá Brugghús Steðja. 

 

Páskabjórinn verður í sölu fram til 19. apríl.  Þegar salan hefst er hægt að leita að viðkomandi tegund í vöruleitinni með því að haka við táknið Tímabundið í sölu.  Þannig er hægt að sjá í hvaða Vínbúðum varan fæst.