Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Íslenskir burðarpokar í Vínbúðunum

07.07.2009

Íslenskir burðarpokar í VínbúðunumPlastprent og Ríkiskaup undirrituðu á dögunum samkomulag um kaup á burðarpokum fyrir Vínbúðir ÁTVR. Um er að ræða 6 milljónir burðarpoka á næstu tveimur árum.  Plastprent bauð lægst í útboði Ríkiskaupa og er einkum ánægjulegt að öll framleiðsla plastpokanna fer fram hérlendis.  

 

Samninginn undirrituðu Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR og Sigurður Þorvaldsson, sölustjóri Plastprents.