Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Allt vöruvalið í þinni Vínbúð!

18.06.2009

Allt vöruvalið í þinni Vínbúð!Vínbúðin hefur opnað nýja og notendavæna Vefbúð á vinbudin.is.
Í Vefbúðinni getur þú skoðað úrvalið í rólegheitum, pantað
vörur og fengið sendar í Vínbúðina þína - án endurgjalds.

Til að versla í Vefbúðinni er einfaldlega farið í vörulistann á vinbudin.is. Hann er hægt að nálgast t.d. með því að smella á einn af yfirflokkunum hér fyrir ofan, smella á "Vöruleit" hér til vinstri eða smella á "Vörur" á vinstri stiku. Ef varan er með mynd af körfu fyrir aftan, er hún til á lager og hægt að kaupa hana í Vefbúðinni. Þegar þú hefur lokið við að setja vörurnar þínar í körfuna, smellir þú á körfutáknið til vinstri eða velur litlu körfuna efst á síðunni.

Allt vöruvalið í þinni Vínbúð!

Allar vörur eru fyrirframgreiddar með kreditkorti og þú velur í hvaða Vínbúð varan þín er afhent. Með þessu móti hefur vöruvalið stóraukist fyrir þá sem búa á landsbyggðinni og þá sem velja aðrar tegundir en eru til í nálægum Vínbúðum.

 

Til að fá aðstoð við að versla í Vefbúðinni er smellt á spurningarmerkið sem birtist fyrir ofan vörulistann. Einnig er hægt að hringja í síma 560-7700 eða senda póst á soludeild@vinbudin.is. Hægt er að lesa nánar um Vefbúðina.

 

Von okkar er sú að þessi þjónusta eigi eftir að koma viðskiptavinum að góðum notum og bjóðum við þá velkomna í Vefbúð Vínbúðarinnar.