Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sá sem flöskustúturinn lendir á...

14.04.2009

Sá sem flöskustúturinn lendir á...Umferðarstofa í samvinnu við Vínbúðirnar eru þessa dagana að hrinda af stað auglýsingaherferð sem heitir „Sá sem flöskustúturinn lendir á“ en með þessu átaki er ökumönnum gerð grein þeim afleiðingum sem ákvörðunin um að aka eftir neyslu áfengis getur haft. Herferðin verður fyrst og fremst í netmiðlum og útvarpi.

 

Því miður er fjöldi fólks sem hefur þurft að upplifa alvarlegar afleiðingar ölvunaraksturs. Sú ákvörðun að aka eftir neyslu áfengis eða annarra vímuefna getur komið alvarlega niður á ástvinum, heilsu, framtíð, mannorði, frelsi og fjárhag viðkomandi. Framtíð margra er mörkuð af alvarlegum afleiðingum þess að þeir óku eftir neyslu áfengis.

 

Lögreglan er með sérstakt átak þessa dagana til að uppræta ölvunar- og fíkniefnaakstur. Þeir verða með öflugt eftirlit víðsvegar og ökumenn geta huggað sig við að með þessu er verið að koma í veg fyrir alvarleg slys sem oft verða af völdum þess að ökumenn eru ekki með viðbragð og athygli í lagi vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu.