Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vöruleit á vefnum

13.02.2009

Vöruleit á vefnumNú hefur verið sett í loftið ný leitarsíða sem víkkar leitarmöguleikana á vinbudin.is til muna. Hægt er að leita að vínum eftir hinum ýmsu skilyrðum s.s. vörunúmeri, heiti, landi, svæði, verði, styrkleika, þrúgum, stærð, matarflokkum og fleiru.

Markmið leitarinnar er að auðvelda leit að ákveðnum tegundum og ennfremur að stuðla að enn betri fróðleik um vörur okkar og úrval.

Hægt er að fara inn á leitina með því að smella á "Vöruleit" í efstu stiku, eða undir "Vörur" í vinstri stiku.