Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Keflavík flytur þann 19.janúar

11.01.2009

Vínbúðin Keflavík flytur þann 19.janúarVínbúðin í Keflavík flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði mánudaginn 19. janúar og mun hér eftir bera heitið Vínbúðin Reykjanesbæ.

 

Viðskiptavinir í Reykjanesbæ verða væntanlega ánægðir með nýju Vínbúðina þar sem hún er björt og skemmtileg auk þess um hún stækkar um rúman helming.   Allur bjór verður í kæli, afgreiðslukössum er fjölgað og auk þess er nóg af bílastæðum fyrir framan Vínbúðina. Aðstaða starfsfólks verður betri en áður og einnig er lager og vörumóttaka mun stærri.

 

 

 

 

Vínbúðin Keflavík flytur þann 19.janúar

Nýja Vínbúðin er staðsett við nýjan verslunarkjarna við Krossmóa 4, þar sem Samkaup er til húsa. Vínbúðin þjónar yfir 20.000 viðskiptavinum á ári hverju.

 

Meðfylgjandi eru myndir frá framkvæmdum við standsetningu Vínbúðarinnar.