Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínráðgjafar á ferðinni

06.10.2008

Vínráðgjafar á ferðinniVínráðgjafar Vínbúðanna eru sérmenntaðir til að veita viðskiptavinum faglegar ráðleggingar hvað varðar samspil víns og matar. Gaman getur verið að fá tillögur og hugmyndir fyrir næstu veislu eða bara fá aðstoð við að kynnast hinu mikla vöruúrvali sem í boði er í Vínbúðunum.

 

Vínráðgjafarnir eru einkenndir með svörtum, merktum svuntum. Í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlu, Skútuvogi og Akranesi er ávalt vínráðgjafi til staðar. En þeir eru líka á ferðinni og verða til dæmis í Vínbúðunum Akranesi, Hafnarfirði og Smáralind um næstu helgi.